Flestir sem þekkja mig vita að ég er ekki mikið fyrir pólitískar pælingar öllu jafna. Ég er ekki flokksbundinn né tjái ég mig um það hvað ég kýs hverju sinni, hvort sem fólki líkar það betur eða verr.

Þessi afstaða mín er meðal annars komin til sökum þess að ég hef ekki fylgt einhverjum einum ákveðnum flokki gegnum tíðna, heldur kosið að fylgja málefnum sem mér hafa þótt skipta máli hverju sinni. Þetta er að sjálfsögðu mjög ómálefnalegt og hrikalega ópólitískt geri ég mér grein fyrir.

Dagurinn í dag gæti þó verið dagurinn sem breytir þessu, og hefur ákveðnum flokki mögulega tekist að kaupa sér mitt atkvæði, ýmist fyrir þessar kosningar eða næstu þar á eftir líka. Hvernig fór hann að því? Jú, með því að senda eitt A4 blað inn á heimilið, með kynningu á uppákomum sem hann hyggst standa fyrir á næstunni.

Blaðið góða er stílað á foreldra mína, ágætis fólk á besta aldri, og hefst með orðunum “?gæti viðtakandi”. Svo sem ekkert óvenjulegt við það enn sem komið er. En síðan kemur bomban;

“Við bjóðum þér til morgunverðarfundar um málefni eldri borgara.”

Man ekki hvenær ég hló síðast svona mikið af einhverju sem fellur í flokkinn “ruslpóstur”, ég held svei mér þá að Sjáldstæðisflokkurinn sé skrefinu nær mínu atkvæði með þessu framtaki sínu.

Hvort bréfið hafi sömu áhrif á foreldra mína er aftur á móti annað mál.

Update: Pabbi vill meina að þetta sé einungis ætlað mömmu þar sem hann sé unglingur. Mamma gælir við þá hugmynd að senda þeim Geir H. Haarde og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur þakkarbréf fyrir að flokka sig sem eldri borgara.