Afspyrnu góðir tónleikar í gærkvöldi, Nouvelle Vague stóðu fyllilega undir væntingum og aðeins meira.
Virtust til að byrja með ekki ætla að taka aukalag, en eftir miklar fortölur komust hljómsveit og áhorfendur að niðurstöðu um að tónleikarnir myndi jafnvel ekkert enda yfirhöfuð – frábær stemmning sem myndaðist í salnum. (Róleg byrjun, rísandi miðjupartur og allt á flug undir lokin.) Stórkostlegt að sjá salinn twista með tónlistinni, og syngjandi með “Friday Night Saturday Morning” & “Too Drunk To Fuck“.

“Wish I had lipstick on my shirt, Instead of piss stains on my shoes.”