Enginn stórkostlegur boðskapur, frekar en venja virðist vera, að þessu sinni – einungis örfá atriði sem glatt hafa mitt litla hjarta undanfarna daga.
Arthúr Ólafsson nokkur hefur tekið til við að skemmta gestum og gangandi. Hann er reglulega með afspyrnu skemmtilega tónlistargetraun, sem ég stefni að sjálfsögðu á að vinna. Öðlingspiltur í alla staði, keilukóngur með meiru (keila virðist einmitt ekki vera mín sterka hlið, merkilegt nokk) og hefði fyrir löngu átt að vera kominn á netið með þessu móti.
Það styttist óðum í að kvikmyndin Stardust sjáist á stóra tjaldinu, skartandi stórskotaliði leikara á borð við Robert De Niro, Ian McKellan, Peter O’Toole, Ricky Gervais, Sarah Alexander og Claire Danes. Trailer fyrir myndina er kominn á netið hérna, hann er stuttur og fyllilega þess virði að skoða.
Myndin er byggð á afskaplega hugljúfri sögu eftir meistara Neil Gaiman (sem er jafnframt með mun skemmtilegra blogg en undirritaður), þótt aðeins sé vikið frá upprunalega textanum líkt og svo oft vill verða. Hann hefur lengi vel verið meðal þeirra rithöfunda er eru í sérlegu uppáhaldi hjá mér, og mæli ég eindregið með því að fólk kynni sér verk hans, þá einkum American Gods.
Gerðist menningarviti ásamt Jónatani í tilefni Vortónleika Söngsveitarinnar Fílharmóníu, afskaplega góðir tónleikar og ágætis tilbreyting frá hinu venjulega. Það stefnir síðan í aðra tónlistarveislu síðar í mánuðinum þegar Nouvelle Vague stíga á stokk í Hafnarhúsinu. Miðar bíða okkar Gunnars nú þegar, þú getur tryggt þér slíka hérna.
Hot Fuzz er afspyrnu gott dæmi þess hversu betri Breskir kvikmyndagerðarmenn eru en Amerískir starfsbræður þeirra þegar kemur að gerð mynda er hæðast að öðrum kvikmyndum. Þrátt fyrir hallærislegt yfirbragð er hún stútfull af hárbeittum bröndurum, orðaleikjum (sem virka) og fær þig til að verkja í síðuna af hlátri.
Gleðilega páska, og varið ykkur á páskahéranum.
by Sjöfn
08 Apr 2007 at 22:26
Gleðilega páska :)
by Arthúr
10 Apr 2007 at 18:40
*fliss* *roðn*
by Gunni
16 Apr 2007 at 14:50
By the ^ of Grayskull!