Þessa dagana stendur yfir heimsmeistaramótið í sundi (í Melbourne í ?stralíu).

Nú er ég enginn sérstakur áhugamaður um sund per se, að öðru leyti en hvað varðar heita potta og gufuböð sem eru gjarnan notaðir fyrir fundarhöld Hins Konunglega Siglingafjélags, en engu að síður er þetta tækifæri tilvalið til þess að koma áleiðis hugvekju – eða öllu heldur fyrirbyggjandi aðvörun.

Þetta er mér enn þann dag í dag ferskt í minni, enda vonbrigðin stórkostleg á sínum tíma, og því vil ég byrgja brunninn áður en fleiri börn detta í hann.

“400m women breaststroke” “womens 400m breaststroke” er EKKI jafn skemmtilegt sjónvarpsefni og það hljómar.

It is generally known that he who expects much will be often disappointed; yet disappointment seldom cures us of expectation, or has any other effect than that of producing a moral sentence or peevish exclamation.
– Samuel Johnson (“The Great Cham of Literature”)

Edit: Þetta er víst ekki 400m há kona, þótt það væri nú líka ágætis pæling.