Upp hefur komið ákveðin (og jafnframt frekar óhugnaleg) þróun eftir að ég hóf nám við ML deildina, megintekjustofn minn á árinu 2007 (enn sem komið er) hefur verið fjárhættuspil. Ekki það sem ég hefði giskað á fyrirfram óneitanlega, og vonandi ekki tákn um það sem koma skal.

Kominn með nýja uppáhalds tónlistarhátíð, Pourqui pas?, en þeim öðlingum sem standa að baki hátíðinni datt í hug að senda mér hingað heim á klakann ekki einungis Nouvelle Vague heldur einnig Air! Held að “þrefalt húrra” sé vel viðeigandi hér.

Hversu langsótt (og jafnframt slæmt) hrós er það að segja við glæsilega stúlku að hún sé “eins og kókflaska”? Merkilegt hvað fólk getur verið mis-orðheppið eitthvað. Nú sé ég alveg hvað viðkomandi var að reyna að segja, en stundum er betra að stoppa aðeins og hugsa setninguna til enda áður en henni er hleypt af tungubroddinum.