Jæja, þá er maður að flytja aftur í bæinn – var að skila af mér húsnæðinu hérna uppfrá nú rétt í þessu. Verður eflaust mis-skemmtilegt að keyra í og úr skóla, en a) á eftir að margborga sig fjárhagslega og b) damn it ég verð í bænum! Újé!
Bankakokteill, kokteilapartý, hittingar og djamm um helgina – ágætt að sletta aðeins úr klaufunum fyrst maður er kominn niður í bæ almennilega. Hið Konunglega Siglingafjélag hefur jafnframt hafið undirbúning fyrir hið stórkostlega ævintýri sem verður Þjóðhátíð í Eyjum ’07. Þetta verður svaðaleg glæfraför vill Ari meina en við HKS meðlimir erum afskaplega bjartsýnir og ætlum okkur stóra hluti.
Mastersnemar loksins komnir með fína aðstöðu hérna uppfrá, nýja stofan var tekin í gagnið í vikunni. Algjör bylting frá því sem áður var, strax byrjað að skipuleggja byggingu mini-bars í horninu hjá leðursófunum til að gera gott enn betra. Sjáum til hvort það verði vel séð af skólayfirvöldum. Húrra fyrir þessari breytingu til hins betra!
Að lokum; Little Miss Sunshine er kostuleg, frábært skemmtun sem ég mæli eindregið með að fólk skelli sér á í bíó.
by Anna
08 Feb 2007 at 22:50
Veeiiii, blogg! Til hamingju! :)
Og velkominn á höfuðborgarsvæðið á ný.
by Ella gella
09 Feb 2007 at 19:03
Hæ pingó !!
by Natti
09 Feb 2007 at 19:58
Til að fyrirbyggja allan misskilning, þá langar mig að benda lesendum á að Maggi er fluttur aftur í Mosó, ekki í bæinn.
by Harpa
11 Feb 2007 at 20:03
Haha góður punktur.. en það eru allavega ekki göngin á milli lengur ;) né Hafnarfjallið þar sem við lentum í “lífshættu” þegar við ákváðum að heimsækja hann seinast ;) svo kannski tökum við aftur road trip í sveitina að heimsækja þig Maggi minn ;) Þú færist nær og nær siðmenningunni ;P
Takk fyrir gærkvöldið strákar :D Gerum það bráðlega aftur!! Svo var ég að muna þegar við fórum út að borða og ætluðum að gera það reglulega haha ;)
by Natti
11 Feb 2007 at 21:22
Haha, þú sagðir gera það… og reglulega líka :P
by Patty-Boy!!!
12 Feb 2007 at 08:04
dörtí dörtí….lovit