Jæja, enn einu sinni hefur manni tekist að svo gott sem hverfa af yfirborði jarðar svo vikum skiptir – merkilegt alveg hreint.
- Tókst að slasa mig í blaki, aftur, með því að lenda illa á vinstri löppinni. Ökklinn ónýtur, lagðist 90° saman eða svo gott sem með ágætis *smell*, ekkert allt of þægilegt. ?þróttir eru hollar og góðar. Búinn að vera stökkbólginn og snyrtilega fjólublár – minnti helst á Fílamanninn á tíma, eða side-project hjá Dr. Frankenstein. Krúttlegt. Sem betur fer ekki jafn slæmt og síðast.
- Við það dó öll íþróttaiðkun (einhverra hluta vegna), ekkert í ræktina, badminton eða neitt annað. Komst ekki með á mótið í Garðabæ. :’(
- Þriðja skiptið sem ég lendi í svona löguðu, að lenda illa á ökklanum. Annað skiptið sem það gerist í blaki. Annað skiptið sem það gerist í blaki rétt fyrir mót. Pottþétt viljandi af því að ég er feiminn og þori ekki að keppa fyrir framan áhorfendur.
- Loksins að verða almennilegur aftur, hlakka mikið til að geta hreyft mig meira en að haltra fram í eldhús á 5 mínútum aftur.
- Búinn að vera rólegur í djamminu líka, hrikalega gaman eitthvað að skralla á einni löpp.
- Komnir yfir 1,000 stakir “heimsækjendur” á síðuna, sem hafa flett undirsíðum yfir 7,500 sinnum. Lítið skref fyrir eina heimasíðu, en stórt stökk fyrir Internetið. *hóst*
- Merkilegir leitarstrengir sem hafa leitt fólk hingað; “Erna Valdís”, “Magnús Sigurðsson”, “ármann gay”, “barnahjól”, “bisness”, “glæpamaður í tjaldi”, “Zedda”, “hjól”, “Magnús á Bifröst”, “arthur opl”, “merkilegt”, “verzló party”, “escort” o.s.frv.
- Gestir frá ?slandi, BNA, Englandi, Kína, Danmörku, Þýskalandi, Serbíu- og Svartfjallalandi, Hollandi, Eistlandi, Chile, ?stralíu, Noregi, Kanada, Frakklandi og Eþiópíu.
- 22 færslur, 120+ comment, ást og hamingja.
by höjkur
29 Oct 2006 at 20:11
ertu að reyna að ljúga því að mér að það séu engar heimsóknir frá Tékklandi?
svo eru serbía og svartfjallaland ekki lengur eitt ríki/land
by Alli™
30 Oct 2006 at 13:05
Bíddu… leitarorðið “escort”? Ég vissi ekki að þú værir farinn útí svoleiðis? Ég vissi að þú værir fátækur námsmaður en ekki svona fátækur… :)
Samt klárlega best “Magnús á Bifröst” klárlega gæti engann veginn verið annar en þú :D
by Maggi
30 Oct 2006 at 14:30
Haukur: Það eru fleiri, ætla bara ekki að telja allt upp ;-)
Alli: $5 good sir! ^^
by Kjarri
02 Nov 2006 at 14:59
Strandblak? keppa?
Ég reyndi einu sinni að fara í svoleiðis og pósa sem ein af stelpunum, en bringubrúskurinn kom upp um mig…
Þú kannski hefur náð betri árangri? =)
by Natti
02 Nov 2006 at 22:26
Alli: Jah… annað leitarorð sem var líka notað til að finna magga var “gefins”. Þannig að ekki láta hann fá fimmarann strax :)
by Anna frænka
04 Nov 2006 at 14:38
Hæ klaufi!
Komin með nýtt blogg, endilega kíktu! :)
by TanjaDögg
07 Nov 2006 at 13:32
Bortz:*
by Sigrún
12 Nov 2006 at 14:49
Sæll, er bara að tjékka á því hvernig þú hefur það :* Betra amk að hafa fundist undir “merkilegur” en “ómerkilegur” ;)
by Davíð
17 Nov 2006 at 13:27
Ég er sá sem er frá Englandi! haha
Ég googlaði um daginn “ástarsamband við Rektor” og þá kom upp þín síða… hmmmmmmm….
by kristján - litli bróðir?
26 Nov 2006 at 12:56
skemmtilega karlmannlegir litir sem skarta þessa blessuðu heimasíðu þína c”,)
by Snorri - stærri litli bróðir
27 Nov 2006 at 13:28
ertu á eiturlyfjum? skiljanlegt að skipta yfir í einhvert jólaþema en þetta er bara plein snar öfugt!
Endurskoða þetta segi ég…
snorri tískulögga
by Anna
27 Nov 2006 at 23:10
Þú ert.. semsagt.. orðinn bleikur? ;) tíhí
by Maggi
29 Nov 2006 at 03:06
Argh! Jónatan!!!! Skammastu þín!
by Natti
29 Nov 2006 at 10:18
*flautar útí loftið*
Ha? Ég? Hvaaað. Þetta voru Guðirnir, honest…
by Sjöfn
29 Nov 2006 at 11:47
hehe… Natti ég er viss um það að þú átt enga sök í þessu…
by Natti
29 Nov 2006 at 12:51
Sko!
Ég er bara fórnarlamb aðstæðna. :D
by Gunni
29 Nov 2006 at 14:21
Mér fannst þetta svoooo viðeigandi. Eitthvað svo… Maggi. Fattaru? Getur þetta ekki verið jólaþemað í ár?
by Harpa
29 Nov 2006 at 17:35
Þetta var Maggi út í gegn ;) Það er alveg augljóst að heimasíðan vildi bara vera í stíl við eigandann og breytti sér sjálf… því Jónatan mundi ALDREI gera svona lagað ;)
by Ari
30 Nov 2006 at 23:27
Hey maggi, ég skoðaði síðuna þína, eins og ég lofaði;) h0h0
by höjkur
12 Dec 2006 at 12:33
bloggaðu drengur
by ?rmann "Party-boy"
15 Dec 2006 at 02:30
Dammit!! missti af bleika seasoninu….farinn út í horn að gráta……..aleinn…. :´(