Jæja, enn einu sinni hefur manni tekist að svo gott sem hverfa af yfirborði jarðar svo vikum skiptir – merkilegt alveg hreint.

  • Tókst að slasa mig í blaki, aftur, með því að lenda illa á vinstri löppinni. Ökklinn ónýtur, lagðist 90° saman eða svo gott sem með ágætis *smell*, ekkert allt of þægilegt. ?þróttir eru hollar og góðar. Búinn að vera stökkbólginn og snyrtilega fjólublár – minnti helst á Fílamanninn á tíma, eða side-project hjá Dr. Frankenstein. Krúttlegt. Sem betur fer ekki jafn slæmt og síðast.
  • Við það dó öll íþróttaiðkun (einhverra hluta vegna), ekkert í ræktina, badminton eða neitt annað. Komst ekki með á mótið í Garðabæ. :’(
  • Þriðja skiptið sem ég lendi í svona löguðu, að lenda illa á ökklanum. Annað skiptið sem það gerist í blaki. Annað skiptið sem það gerist í blaki rétt fyrir mót. Pottþétt viljandi af því að ég er feiminn og þori ekki að keppa fyrir framan áhorfendur.
  • Loksins að verða almennilegur aftur, hlakka mikið til að geta hreyft mig meira en að haltra fram í eldhús á 5 mínútum aftur.
  • Búinn að vera rólegur í djamminu líka, hrikalega gaman eitthvað að skralla á einni löpp.
  • Komnir yfir 1,000 stakir “heimsækjendur” á síðuna, sem hafa flett undirsíðum yfir 7,500 sinnum. Lítið skref fyrir eina heimasíðu, en stórt stökk fyrir Internetið. *hóst*
  • Merkilegir leitarstrengir sem hafa leitt fólk hingað; “Erna Valdís”, “Magnús Sigurðsson”, “ármann gay”, “barnahjól”, “bisness”, “glæpamaður í tjaldi”, “Zedda”, “hjól”, “Magnús á Bifröst”, “arthur opl”, “merkilegt”, “verzló party”, “escort” o.s.frv.
  • Gestir frá ?slandi, BNA, Englandi, Kína, Danmörku, Þýskalandi, Serbíu- og Svartfjallalandi, Hollandi, Eistlandi, Chile, ?stralíu, Noregi, Kanada, Frakklandi og Eþiópíu.
  • 22 færslur, 120+ comment, ást og hamingja.