Herlegheitin skollin á í allri sinni dýrð (eða svo gott sem), stundaskráin reyndar ennþá í einhverju rugli þannig að ég er í fríi mánu-, miðviku- og föstudaga eins og stendur. Sjáum til hvort við getum ekki bjargað því einhvernvegin. Skólinn byrjar reyndar rólega líkt og gjarnan vill vera, nýnemar spóka sig um í djammfötum og eru almennt með óspektir sem hefur leitt til þess að eldri nemendur hafa tekið sig til og kynnt þá fyrir staðarháttum á sinn einstaka hátt.

Útgarður 1 er fullskipaður og vígður, og innflutningur er á góðri leið. Stefnir í afskaplega góðan vetur með þessum sambýlingum. 80% farnir að ræktast (?rni Gísli hugsaði um að fara í göngutúr á meðan við tókum á því, skal takast að draga hann með!) og matgæðingar eru nú þegar farnir að deila uppskriftum.

Ég er skrefi nær heimsfrægð á Internetinu, en skulda víst einhverjar uppfærslur frá síðustu hittingum sumarsins (sem og myndbands sem tekið var af fullum manni í annarlegu ástandi og enn annarlegri undirfötum) – reyni að bæta úr þessu við tækifæri. Borg óttans um helgina, skrall eða taka einn Natta á þetta?