Tók edrú týpuna á föstudagsdjammið, útkoman prýðileg að flestu leyti.

Við Gunni byrjuðum kvöldið rólega á Grillhúsinu, þar sem ég fékk ábótina hans af súpunni þar sem afgreiðslustelpunni fannst við svo sætir. Hafist var handa við að skipuleggja kvöldið meðan beðið var eftir matnum, og púlsinn tekinn á ‘The Usual Suspects’. Alli ákvað að vera heima undir flísteppi þrátt fyrir miklar fortölur (og bar fyrir sig stjórnarskrárbundinn rétt sinn til að djamma ekki), Natti var í heljarinnar grillveislu eftir að hafa (ekki) tekið þátt í Golfmóti með vinnustaðnum sínum og ?rmann var staddur í óvissuferð með Verkfræðideildinni í HR.
Pálmar hafði tjáð mér að hann væri að fara að spila í ferðinni fyrr um daginn og fékk ?rmann því það merkilega hlutverk að a) finna Pálmar (sem hann þekkir ekki) og b) segja honum að “hann sé feitur og ég hati hann?. Hrikalega fyndið að heyra þetta gegnum símann. Pálmar fékk síðan símann og svaraði fyrir sig með því að segja að ég væri bara mongólítapanda (og þar gekk hann of langt, sveiattann!) en við náðum þó sættum á endanum og drógum orð okkar til baka. Mögulega hlæjandi.
Gunni náði þó að koma því til skila að honum fyndist Pálmar vera feitur og hann hataði hann áður en símtalinu lauk, en það er bara eitthvað sem þeir tveir verða að útkljá sín á milli. Ég legg til einvígi í morgunsárið, kvennmannsveski á 20 metra færi.

Eftir að hafa kvatt sætu afgreiðslustelpuna var rölt upp á Hverfisgötu þar sem planið var að hita aðeins upp fyrir djammið, en við erum ekki fyrr búnir að koma okkur vel fyrir en ?rmann hringir aftur – í þetta sinn grátandi af því að hann þekkir engan og á enga vini – og bað mig að sækja sig í óvissuferðina. Fyrstu viðbrögð voru mögulega þau að við dóum úr hlátri, en eftir að hafa hlustað á hann snöktandi í símann í smá stund ákvað ég að vera góður og renna eftir honum. Hann var staddur “hjá einhverju vatni, en ég held ég sjái blokkir í ?rbænum? – sem er önnur leið til að segja að hann hafði ekki hugmynd um hvar hann væri niður kominn. Kemur síðan í ljós að hann er staddur hjá Reynisvatni, og blokkirnar tilheyra Grafarholtinu. ?rmann auli.

Reynisvatnið minnti á Miðstjórnarpartýin í Verzló á sínum tíma, sem var hressandi. Dj Massaður og Dj Cut gjörsamlega áttu svæðið, Pálmar baðst afsökunar á því að hafa gert grín að ‘Rave Panda’ en gat ekki spilað fyrir mig óskalag þar sem hann átti það ekki. Slappur Dj þar. ?rmann grét þegar hann sá að riddarinn á hvíta hestinum var kominn honum til bjargar, en varð furious þegar við gátum varla hreyft okkur fyrir fólki sem ég kannaðist einhvernvegin við og vildi endilega spjalla við okkur. Minnir að hann hafi orðað það einhvernvegin svona; “Andskotinn hafi það, af hverju þekkir þú alla í skólanum mínum?!??. Ekki mér að kenna að hann sé slappur gaur.
Fyndið að rekast á þetta lið svona, Snorri lillibró var á svæðinu og tókum við smá sprell í tilefni þess – og ég hitti afskaplega fallegt fólk sem mér þætti afskaplega gaman að hitta aftur við tækifæri.

Því miður vorum við lofaðir í annað partý með skemmtilegu fólki og yfirgáfum við því svæðið (sem voru klárlega mistök og ég er hættur að lofa mig í önnur partý…), og stefnan var sett á Hverfisgötuna að sækja Gunna. ? leiðinni þangað tókst ?rmanni að plotta við Alla um að sleikja á mér eyrað – meðan ég væri að tala í símann, hann náði því að ‘flassa’ bílinn við hliðin á okkur á ljósum (sem var fullur af strákum) og standa út um gluggann á ferð – ber að ofan og veifandi stelpunni í bílnum við hliðin á. Kærastanum hennar var ekki skemmt, en við stelpan hlógum.

Afgangurinn af kvöldinu var í grófum dráttum;
- ?rmann kom út úr skápnum, með smá hjálp frá okkur Gunna
- ?rmann tók keg-stand (ber að ofan), fékk bjór í nefið, datt á dós og kramdi hana
- ‘Matti’ var geðveikt ánægður að muna að ég héti ‘Hákon’ – sendi hann út að hlaupa hringinn kringum húsið leitandi að bjór til að halda upp á það…
- Jóhanna var næstum búin að plögga ?rmanni saman við bróðir sinn, allt partýið hélt að hann væri nýkominn út úr skápnum
- Við Gunni höfðum ekkert með það að gera. Honest.
- FeitGeir og Barbara brabra Barbabrella mættu
- Anna sagði mér söguna af spilastokknum, sem var hrikalega fyndið
- Harpa var með sætar kinnar (almennt mat viðstaddra)
- Rut fann hatt og klæddi ?rmann úr skyrtunni
- Við földum skyrtuna, ?rmanni ekki skemmt. Gott á hann.
- Hamstrar, dauðir hamstrar, hamstrar með fullar kinnar og mongólítahamstrar sáust hægri-vinstri
- Takk Sigrún fyrir ágætis partý.
- Kíktum í bæinn; Pravda, Hressó, Prikið, oooogsvoframvegis…
- ?rmann fékk 220 rokkprik (prúttaði upp úr 200) fyrir að smygla 5L bjórtunnu inn á Pravda. Hefði samt ekki tekist án aðstoðar okkar Gunna og Natta, þannig að við fáum prik fyrir viðleitni.
- Snorri og Sylvía voru á Pravda. Við Daði tókum mission á að annar truflaði Snorra alltaf meðan hinn dansaði við Sylvíu – gekk í hálftíma eða svo.
- Bragi.mov sýndi töfrabrögð með félaga sínum, ekki lítið nett!
- ?rmann vann þetta kvöld, má eiga það. Þótt hann sé vitlaus og hafi verið fullur. 5L kútur! =)
- Hver segir að maður geti ekki skemmt sér edrú? Með svona vini þarf maður ekkert áfengi, klárt mál.