24 Aug 2006 at 18:05
Random
- Skólinn rétt handan við hornið (setning 3. sept), stundaskráin komin og lítur bara ágætega út. Frí á föstudögum, sem er frábært, en ég býst alveg eins við því að auka áfanga verði troðið á þá. Ef ekki þá þarf klárlega að halda upp á þriggja daga helgarnar í vetur. Óháð því stefnir í þrusugóðan vetur þar sem sambýlismennirnir eru ekki af verri endanum. Stefnir í ágætis innflutningspartý og læti!
- Menningarnótt (og í raun öll helgin) var… menningarleg. Rólóskrall, prýðis dansfélagar, flugeldasýning með ‘spiked’ shake, Laugavegskórinn tók lagið og Aladdin taktar sáust.
- Ég fæ mitt eigið albúm hjá Markúsi, og í könnun hjá Natta segja 95,5% að ég sé ‘Player’. Þetta fólk veit augljóslega ekki hver ég er og hefur aldrei hitt mig á ævinni. Erna Valdís orðaði það best þegar hún var spurð, “Hahahaha!”. Svona er það þá að vera heimsfrægur á Internetinu…
- Stefnir í gleði um helgina, gæti vantað dansfélaga. Any takers?
Leave a Reply
by Natti
25 Aug 2006 at 01:03
Uj,
Innflutningspartý.
Er mér boðið?
Og… má ég þá crasha? :D
Uh…“Error: please fill the required fields (name, email).”
Við vorum búnir að ræða þetta, er það ekki?
[maggi: lagað, var að uppfæra]
by Natti
25 Aug 2006 at 15:16
Æðipæði :D
by Mosi
25 Aug 2006 at 18:27
þýðir ekkert að neita þessu!! Play on playa
by HV
26 Aug 2006 at 10:37
Mikið verður gaman að fá þig uppeftir elsku kúturinn minn ;)
by Hekla
26 Aug 2006 at 13:50
Nei takk, ég dansa ekki við þig. No way.