Verslunarmannahelgi í allri sinni dýrð með tilheyrandi vitleysu, kjána- og rokkprikum, og svo frídegi allra nema verslunarmanna að því virðist.

Jónatan fór á fimm daga fyllerí í Eyjum og frekar en að láta höfuðstöðvarnar á Hverfisgötunni standa hálf-auðar var tekið á það ráð að pakka niður og flytja þangað inn yfir helgina. Við Gunni reimuðum því partýskóna og héldum innihátíðina Borg Óttans ’06, sem tókst með eindæmum ágætlega.

Föstudagur:
Nett ekki-innflutningspartý með mustasch a-la Gunther. Ég ákvað þó að leyfa Gunna að sjá alfarið um þau mál en uppi eru hugmyndir um gott Gunther-djamm við tækifæri. ?rmann var ólíkt helginni á undan ekki teipaður, en upplýsti okkur loksins um það hversvegna hann drekkur alltaf þennan litla bjór sinn (og reynir gjarnan að smygla inn á skemmtistaði). Það er semsé ekki af því að þetta sé svo góður bjór (honum finnst þetta víst ekki einusinni góður bjór yfirhöfuð!), heldur er það af því að þetta eru “svo handhægar umbúðir?. Hann var þó frekar rólegur og endaði því ekki dauður uppi í sófa með Gunna á bakinu.
Ari var rólegur á kantinum, Alli og Elíza komu á skrall (sem var afskaplega ánægjulegt og mætti gjarnan gerast oftar *nudge-nudge wink-wink*) og við Markús settum okkur einhverra hluta vegna það markmið að komast inn á “skemmtistaðinn? Sirkus. Versta markmið sem við höfum sett okkur í langan tíma, hrikalega leiðinleg röð, ennþá leiðinlegri “dyravörður? og ?rmann lýsti staðnum snyrtilega eftirá sem “Ó guð hvað það var mikið af ljótu fólki þarna!?. Barinn bjargaði málunum með því að vera beint á móti, vera með dúndrandi skemmtilega tónlist (virðist alltaf vera með góða danstónlist þegar maður slysast þarna inn, gera það oftar) og fallegt fólk hægri-vinstri. Gott kvöld þar með pizzum, ást, hamingju, tónlist og gleði. Gunni missti reyndar af góðum hluta þess þar sem hann tók eldheitt stefnumót við lyklasmið framyfir bæjarskrall. Ætti að kenna honum að taka lyklana að íbúðinni með þegar hann fer út og læsir á eftir sér.

Laugardagur:
Dagurinn tekinn snemma til að ná morgninum, skreið frammúr uppúr fjögurleytinu þar sem ég hafði uppgötvaði mér til mikillar skelfingar að ég var ennþá fullur þegar ég ætlaði að fara með Gunna að hjálpa litlum kjánalegum hobbita að flytjast kringum hádegið.
Natti sá sig knúinn til að senda ítarlega skýrslu frá Eyjum um framgöngu mála þar, grunar sterklega að hann hafi verið í enn verra ásikomulagi en ég (sem er ánægjuleg tilhugsun). Hann hafði rekist á ‘Afródíturnar’ og náði að beita þeim fyrir sig gegn Agli sem refsingu fyrir að fara alltaf svona snemma að sofa af djamminu, góður þar. Egill er samt fínn gaur og á góð móment á borð við “hver þarf að stoppa til að æla á Laugarveginum? og “I swear I didn’t have my hands down my pants!?.

? borg óttans var aftur á móti slegið til teitis um kvöldið með drykkjuleikjum, pool og pósum. Inga var sveitt að venju og drekkandi bölvað sull (3x flösku?bjórar? blandaðir saman?), og hinn hressi kærasti hennar mætti á svæðið skelkaður þegar hún sagði í hvaða félagskap hún væri.
Ég nýtti ítarlega reynslu mína af þjálfun dýra (einkum ferils sem slöngutemjari) og kenndi Erlu gott partytrick við mikla hrifningu viðstaddra. Með einfaldri handahreyfingu fékk ég hana til að slá ?rmann utanundir hinu megin úr íbúðinni – gott það. Markús fékk að prófa og hafði gaman að, en Gunni missti sig gjörsamlega þegar ég veitti honum ofurkraftana (with great power comes great responsibility, klárlega ekki efni í ofurhetju) og misnotaði völdin óspart. Erla er komin á heiðursmannagestalista fyrir verðandi partý, góð þar.

Drykkjuleikirnir náðu nýrri hæð í skemmtilegheitum þegar undirrituðum barst sms frá óþekktu númeri; “? hverju ertu…?. Því var að sjálfsögðu svarað hið snarasta; “Sérdeilis góðu skapi! Hver og í hverju ertu??, og ekki meira spáð í því í bili (þar sem sem einhver hélt því fram að ég hefði verið að ljúga í drykkjuleiknum og ég varð því að klára drykkinn, aftur). Þegar síminn pípir síðan skömmu seinna stekkur nafnlaus mongólíit (köllum hann “Gunna?) á símann og deyr úr hlátri þegar hann nær loksins að opna skilaboðin. Hann les þau síðan upp fyrir allt partýið; “Ég heiti Bsdís og ég er bara í snoopy nærfötum…? (nafni breytt til að vernda saklausa(?)), og tók sig síðan til og svaraði sms’inu úr sínum eigin síma sem “allt partýið hefur voðalega gaman að snoopy nærfötunum þínum?. Snoopy er einmitt svalasti hundur mannkhundkynssögunnar eins og allir vita.

? leiðinni niður í bæ var rokkprikum útdeilt (?rmann fór á mis við 750 stiga one-shot, slappur) og klink endaði á furðulegustu stöðum(ælum?). Gunni varð sér úti um 20 prik með því að ‘finna’ öskubakka óvart inná sér eftir að labbað hafði verið út af skemmtistað, var toppaður með hamri (hamar, verkfæri – hvað er slíkt að gera á (sama) skemmtistað?) sem gaf 50 prik! Kvöldið átti síðan að enda á frábæru missioni okkar ?rmanns sem fól í sér að verða sér úti um Subway-brauð og nýta það á Bæjarins Bestu. Okkur til mikillar skelfingar var Subway lokað, þannig að söguhetjurnar urðu að láta sér nægja “venjulegar? BB. Fyrsta og eflaust síðasta skipti sem ég heyri mann panta sér “eina með öllu nema hráum, og svo siðlaust mikið af sinnepi að ég vil heyra pylsuna hrópa ‘blurrrrrbb… hjálp ég er að drukna í sinnepi!’? – gaman það. Markús fann sætu vinkonu sína sem dansaði á borðum (og átti myndir af því fyrir þá sem misstu af ‘live show’), og sofnað var útfrá ljúfum tónum “æl-æl-æl? þar sem Þórdís átti mis-gáfuleg samtöl við Dr. Villeroy & Hr. Boch, virta kollega Hr. Gustafsberg.

Sunnudagur:
Sunnudagskvöldið byrjaði á því að Gunni flutti inn nýtt 120L 160L fiskabúr, ásamt kjánalega hobbitanum okkar, sem varð tilefni fjöruferðar síðar meir. Þegar drengirnir eru að púsla því saman barst undirrituðum sms; “? hverju ertu…? mér til mikillar ánægju. Önnur gella og annað kvöld, yay! Þar var á ferðinni Zedda sem var stödd í heitum potti ásamt ?sdísi og Svaný (höfðu víst haft húmor fyrir kvöldinu áður, hjúkk), og háværu-þegjandi/þegjandi-talandi vinkonum sínum. Merkilegt hvað Zedda er góð í sölumennsku en slæm í samningatækni á sama tíma, en lengi lifi MMS símar með myndavélum (I’m keeping those.)!

Haldið niður í bæ á gott skrall eftir pottinn, þótt Gunni hafi farið að halla sér fyrir vinnu daginn eftir. Rákumst á the usual suspects (?rmann –týndi- símanúmeri hjá gellunni sinni fyrir utan Glaumbar…), við Markús tókum góð two-men show á barnum (lyftur, kanóar, rúllustigar og kafbáturinn góði), og í ljós kom að 60% danskir ostar eru góðir fyrir þig.

Þrusufín helgi, jafnvel spurning um að halda upp á einnar viku afmæli þjóðhátíðar núna á föstudaginn? Innihátíðin “Borg Óttans ‘06? var dúndrandi success, tökum Eyjar ’07 með stæl að ári. Sigurðsson þakkar fyrir sig og heldur áfram að njóta lífsins í alvöru sumarfríi – þar sem allir dagar eru Laugardagar.