Þrír dagar eftir og svo er þessi blessaða önn búin, hvert sem litið er má sjá þreytta háskólanema lítandi á klukkuna og teljandi niður mínúturnar sem eftir eru.
Kíkti með Finn og Ingvari út í Jafnaskarðsskóg að stökkva í hyl til að brjóta upp daginn, ískalt og hressandi – fyrsta skipti sem ég læt gabba mig út í svona vitleysu, en greinilega ekki það síðasta. Skokkuðum síðan aðeins um skóginn til að hlýja okkur eftir á, ágætis leið til að vakna aðeins og lifna við eftir lesturinn. Gef okkur þrjú prik fyrir þetta, og Finnur fær eitt að auki fyrir að vera vitleysingur og stökkva jafn oft og við Ingvar til samans.
Pínu ljóðrænt að sjá regnbogann leiða til Bifrastar, ekki frá því að það hafi glitt í Heimdall og Himinbjörg þarna í skýjunum yfir campus – og þökk sé dj Hönnu var “Somewhere over the rainbow” að spila undir í bílnum á leiðinni heim.
by Ingvar
18 Jul 2006 at 20:48
Þetta var algjör snilld, maður á að gera einhverja svona vitleysu oftar, í stað þess að hanga heima hjá sér í einhverju video-glápi…
by Maggi
20 Jul 2006 at 00:00
Verst að hafa ekki haft myndavél meðferðis :p
Ef einhver á fullt af pening má viðkomandi endilega gefa mér nýja digital cameru!
by Natti
20 Jul 2006 at 01:25
Ertu ekki með tveggjamegapixlamyndavélasíma ?
Er það ekki miklu meira en nóg? :o
by Sonja
20 Jul 2006 at 15:51
Híhí afar ánægð með mig að hafa fundið síðuna þína, nú get ég fylgst með þér í sumarfríinu :) En eftir lesturinn er ég ekki viss um að ég vilji djamma með þér… en þú ert samt ennþá voða sætur og fínn sem framhjáhaldið hans Gulla síns.
by Sigrún
21 Jul 2006 at 17:04
Hljómar skemmtilegt.. mjög :)