Maður á víst ekki að komast upp með það að sleppa frásögn af góðri helgi, er farinn að hallast að því að þetta pakk sem maður umgengst muni einfaldlega ekkert sjálft og þurfi því að láta fullvissa sig um að engar stórkostlegar skammir hafi átt sér stað. Kíkjum á helgina á undan þessari sem var að líða.
Þar sem ‘The usual suspects’ voru allir ólofaðir á laugardagskvöldið var ákveðið að taka góða rútínu í boði Hins Konunglega Siglingafjélags. Byrjuðum rólegir á pool, pizzu, köldum drykkjum og fótboltaleik milli Brazilíu og Frakklands. Héldum áfram leitinn að hinni fullkomnu pizzu, erum að færast nær markinu með hverri helgi sem líður. Frakkland valtaði yfir Brazilíu og pizzan var góð, þannig að allir voru ánægðir.
Eftir leikinn fór fólk að tínast inn, Gunni hafði lært af mistökum síðustu helgar þar á undan og lýsti því yfir að nú skyldi hann sko koma með á gott skrall – húrra fyrir því. Það að hann hafi þurft ‘smá’ hvatningu þarf ekki að koma fram. Halla kíkti í pastarétt hjá honum yfir leiknum og var eitthvað frameftir, en lagði ekki í djamm. Samt örugglega alveg fín stelpa þegar maður kynnist henni. Þau Gunni tóku sig til við að finna tónlist fyrir kvöldið, og Ari þorði ekki inn til þeirra (þrátt fyrir opnar dyr) þar sem honum hafði verið tilkynnt að þau væru fáklædd þegar hann kom á svæðið.
Ármann lét það ekki stoppa sig (þau voru ekki fáklædd, en Markúsi fannst það fyndin saga) heldur æddi beint inn til þeirra og var skiljanlega fyrir vonbrigðum með ofgnótt klæða. Ara jóx hugur við þetta og gægðist inn, sást ekki til hans næsta hálftímann.
Þegar poolmóti okkar Natta, Markús og Ármanns hafði nánast verið skemmilagt (alvöru orð, honest) trekk í trekk sáum við okkur ekki annað fært í stöðunni en að vaða inn á þau þrjú, veifandi drykkjum, og látandi þau vita að áttundi áratugurinn hefði verið að hringja – hann vildi tónlistina sína aftur. Hvers vegna þau tóku ekki meira mark á okkur en svo að þau skellihlógu og heimtuðu að fá að taka þetta upp á video skil ég ekki. Mótinu var þó bjargað þegar Ármann gekk um og fékk alla með sér í samsæri gegn Markúsi, sem hafði náð að fá pool-krít (bláa dótið) yfir hálft nefið og langt niður á kinn án þess að taka eftir því sjálfur. Það eitt að sjá Ármann læðupokast um íbúðina hvíslandi að öllum sem hann náði taki í hefði átt að klingja einhverjum viðvörunarbjöllum í kollinum á drengnum, en svo var víst ekki.
Markús rifjaði upp gamalt plan frá Ármanni og reyndi að troða sér undir rúmið hans Gunna í von um að geta komið með hróp og frammíköll ef eitthvað skyldi eiga sér stað í því seinna um kvöldið, sem hefði svosem alveg getað gengið ef Gunni hefði ekki setið á rúminu og hlegið með okkur að því þegar Markús náði þeim einstaka árangri að festa sig næstum því hálfa leið undir rúmið. Var mjög sneyptur þegar hann náði að losa sig og sagði að það hefði eitthvað verið fyrir undir rúminu þannig að hann kæmist ekki. Við höfum enn ekki lagt í það að kanna hvað er undir rúminu hans Gunna, það er eflaust skrímsli (og við erum logandi hræddir við skrímsli).
Tanja sætaborts lét sjá sig, ánægjulegt það, og enn eitt klakaboxið framdi sjálfsmorð. Hvað það er með þetta heimili og klakabox mun ég aldrei skilja, þau endast ekki kvöldið virðist vera. Ármann og Markús kláruðu blandið sitt og fóru að experimenta með “góðar hugmyndir frá góðum barþjónum”. Þeir voru mjög hissa á því að drykkurinn þeirra væri a) ekki góður og b) ógeðslega vondur, þrátt fyrir að hafa blandað hann í vitlausum hlutföllum, með vitlausu áfengi og vitlausu blandi. Darwin er ekki ennþá hættur að snúa sér í gröfinni…
Okkur tókst að finna lítinn tuskufíl inni hjá Gunna, sem kannaðist ekkert við gripinn, og vorum næstum búnir að koma honum ofan í fiskabúrið þegar hann náði að stoppa okkur. Við reyndum að útskýra fyrir honum að þetta yrði allt í lagi þar sem raninn myndi standa uppúr og hann gæti þannig andað, og fiskarnir væru hræddir við hann hvort sem er og því búnir að fela sig á botninum og þar af leiðandi ekki í neinni hættu. Hann var ýmist ekki búinn að drekka nóg, við of mikið, eða beggja bland – en hann tók frekar dræmt í hugmyndina og af-fílaði (afvopnaði) okkur.
Ég af-símaði Höllu í staðinn þegar síminn hringdi, og kynnti mig sem Höllu fyrir ‘Agnesi’. ‘Agnes’ svaraði djúpum karlmannsrómi að “abb abb abb, hér er eitthvað ekki eins og það á að vera!”, og krafðist þess að fá að tala við Höllu. Ég benti honum snyrtilega á að fyrst ‘Agnes’ væri karlmaður hlyti Halla að geta það líka, og það stóð svo í honum að ég fann reykjarlyktina gegnum símtólið þegar kvörnin tók að snúast í leit að góðu mótsvari. Eftir smá stund gafst hann þó upp, og kallaði á hina sönnu Agnesi sem fékk umsvifalaust að heyra í hinni sönnu Höllu.
Svaný og Ásdís mættu skömmu síðar með tvær vinkvenna sinna í eftirdragi, önnur var hávær þegar hún talaði ekki og hin algjör andstæða (eflaust frábær í myndastyttuleik). Fyndin blanda, bauð upp á gefandi samtöl. Einhliða, en gefandi samtöl.
Sú háværa hófst strax handa við að blanda Mojito fyrir sig og hvern annan sem vildi, en þegar lyktin fór að berast um húsið (og út húsalengjuna vafalítið) fækkaði áhugasömum snarlega. Ekki vissi ég að hægt væri að klúðra áfengum drykk svona hrapalega, þetta var verra en tilraunin þeirra Ármanns og Markúsar. Hún var í kjölfarið hvött til að læsa sig úti á svölum eða hoppa fram af þeim.
Haldið var niður í bæ fljótlega upp úr þessu, Markús var þá ennþá blár í framan þar sem enginn vildi skemma samsærið. Ármann var ánægður með þetta, merkilegt nokk. EValdís lét sjá sig, Kári fór á kostum (Hverjum er ekki sama?!?, ítrekað) við ‘diet’ borðið hans Ármanns – Ármann neitaði að kannast við djókið þegar aðrir sem sátu við borðið spurðu hann út í málið. Pínu ‘had to be there’.
In other news
- Kvikyndislegt Push Up við inngöngu
- Júlli fékk Lite, í gleri, með Lime sneið – hann grét
- Natti, Markús og Ármann náðu að týna Kaffibarnum
- Fundu hann aftur og hlupu upp Laugaveginn til að gefa túrista leiðbeiningar
- Nonni: Besta sem hefur komið fyrir íslenskan skyndibita
- Vaknaði miklu fyllri en ég fór að sofa
- Dansað á nærfötunum og sungið í sturtunni
- Brynja tók pottinn á þetta
- Natti sýndi fötlun sína opinberlega
- Kristján kominn með bílpróf, þá er bara Friðrik (10 ára) eftir
- Friðrik er aumingi og atvinnuleysingi segir Kristján…
- Haukur er kominn með mail order bride, og er nokkuð sáttur
- Fólk með nef-áráttu er fyndið, sérstaklega fullt
by Ármann "Party-2the-boy"
18 Jul 2006 at 22:15
Hahahaha, djamm-bloggin þín eru það besta í heiminum……….. á eftir súkkulaði auðvitað… (“,)
en já Markús var helvíti öflugur með stríðsmálninguna í andlitinu (pool-krítin góða) að reyna að troða sér “laumulega” undir rúmið hans Gunna, og vonbrigðin leyndu sér ekki þegar missionið mistókst…
Greyið Darwin….en jæja hann hefur þá allavega eitthvað að gera…
Kári er náttla ekkert minna en snillingur…þó svo að ég hafi þurft að standa á því að ég hvorki þekkti þennann ruglaða gaur sem sat hjá okkur né vissi hvað hann var að tala um …….hverjum er ekki sama!!
Ármann, biður fyrir klakaboxi helgarinnar…