Ef tvær lestir fara frá Chicago í sitt hvora áttina; önnur á 100 Km hraða og hin á 120 Km hraða… Hversu vel tekurðu þig þá út í bikini? ( ) Vel ( ) Mjög vel ( ) Ekkert bikini… Þetta var sko bústaður fyrir lengri komna!
Archive for July, 2006
Sparigrís
Það hlaut að koma að þessu, klinkbaukurinn góði loksins fullur. Leið svolítið eins og ég væri orðinn 10 ára aftur þegar ég fór með hann út í banka til tæmingar, fékk samt engan sleikjó. 4.563 kr. þakka þér pent fyrir. Ríkasti maðurinn í Babylon hvað…
Ljúfa lífið
Ég er kominn í sumarfrí Borðaði yfir mig af grilluðum humar í tilefni þess Er að fara í bústað með fallegu fólki, góðu grillmeti, ofgnótt áfengis og heitum pott Kláraði heita vatnið í Mosfellsbæ með sögulega langri sturtu …og sumarið er rétt að byrja
Somewhere over the rainbow
Þrír dagar eftir og svo er þessi blessaða önn búin, hvert sem litið er má sjá þreytta háskólanema lítandi á klukkuna og teljandi niður mínúturnar sem eftir eru.
Nóttin er ung
Fyrsta skipti sem ég hef lent í því að nota setninguna “Klukkan er korter í eitt og ég er ekki byrjaður að drekka… er að bíða eftir ömmu.” í símtali. Eins gott að ég fái harðan pakka í jólagjöf!
Sigurdsson.is
Lénið skráð, Jónatan svo elskulegur að hýsa fyrir mig vefinn. Sjáum til hvort við getum ekki gert eitthvað gott úr þessu ;-) Annars virðist ætla að rætast úr helginni, byrjaði daginn á því að sofa yfir mig í próf (vakinn af Bryndísi og Finn, mange takk!) og allt hefur verið á uppleið síðan þá.